Fæst ekki lengur romm og rúsínu súkkulaði?
Fæst ekki lengur romm og rúsínu súkkulaði?
Já, saklausunssektersönnuðliðið hefur hægt um sig núna.
Alsettur gröftugum kaunum.
Ég sé að hreinsanirnar í Framsóknarflokknum halda áfram. Ég efast samt um að þær skili auknu fylgi.
Fór á Birtíng í gær. Frábær sýning og allt upp á ellefu, nema tvennt; tónlistin var svo há að söngurinn heyrðist ekki þó leikararnir öskruðu textana frekar en að syngja og leikstjórinn hefði mátt vera duglegri að skera niður alltof langa mónólóga. Leikur, búningar, lýsing, sviðsetning æði. ⭐⭐⭐⭐
Ég held að hann fíli tribute-tónleika.
Sonurinn tekinn við: Sagður eiga milljarða og lúxuseignir um allan heim - DV share.google/YlGfmIEuw047...
Ólíkt Trump?
Hann má svo sannarlega bulla hvað sem er, það er samt óþarfi af fjölmiðlum að lepja það upp gagnrýnislaust.
Ég hef alltaf skilið þetta sem einfalt, sá sem er kýrskýr er einfaldur og það sem er kýrskýrt er einfalt.
Diskur af pasta carbonara með parmesan yfir.
Þú ert mér innblástur.
En vel að merkja ein flottasta kápa sem ég hef séð.
Appelsínugul kápa með stílíseraðri svartri mynd af nauti.
Bók 9, Glæsir eftir Ármann Jakobsson. Söguleg skáldsaga, armasta bókmenntagreinin, endursögn á Eyrbyggjasögu sem minningum Þórólfs bægifótar afturgengnum sem naut. Bætir engu við og er tilgangslaus. Ef þú hefur ekkert nýtt að skrifa er betra að sleppa því en að endurskrifa aðra sögu. Engin stjarna.
Mig dreymir blauta drauma um að losna undan íslensku krónunni, vöxtunum og verðtryggingunni.
Aldrei gera í dag það sem má fresta á morgun.
Ég held reyndar að vel flest sem segjast ekki kunna latínu kunni meira en þau halda.
Og öll nema Gurney með voðalega fína titla. Nú veldur Kluarcsom mér vonbrigðum.
Miðað við fjölmiðlaumfjöllunina virðist vera gríðarlega sterkt latínulobbí á Íslandi.
Í ljósi þessa mislingafaraldurs í Bandaríkjunum, þarf ekki að setja bann á komu ferðamanna þaðan til Íslands, eða a.m.k. bólusetningarskyldu?
Ég hef ekki lesið\hlustað á viðtalið við Margréti Löv og mun ekki gera. Mér finnst ekki sniðugt að taka viðtöl við morðingja nema í rannsóknarskyni, en ég skil alveg tilhneigingu fjölmiðla til að gera það. Mér fyndist samt eðlilegra að bíða með slíkt þangað til þeir eru búnir að afplána.
Einni málsgrein?
Kápan af When the Moon Hits Your Eye eftir John Scalzi. Geimfari stendur á því sem virðist vera tungl úr osti og tekur sjálfu með svartan stjörnumskrýddan himin í baksýn.
Tunglið, tunglið 🌙 taktu mig. Bók 8 á árinu er When the Moon hits your eye eftir John Scalzi. Hvað gerist þegar tunglið breytist skyndilega í ost? Stórkostleg saga sem gerist á einum tunglmánuði. Tær snilld. Fjórar og hálf stjarna. ⭐⭐⭐⭐💫
www.dv.is/frettir/2026...
Er ekki Morgunblaðið hakkavél Samherja?
Fyrir utan að það voru nú fyrst og fremst RÚV og aðrir fjölmiðlar sem voru í hakkinu þarna.
Botnaðu þetta?
heimildin.is/grein/26019/...
Gat báðar myndaspurningarnar, en bara 8 af hinum.
Ég er saklaus, byrjaði á Tango in the Night (ég er 80's unglingur), en Rumours er á leiðinni á fóninn.
Plastpoki frá Discoteca al Pantheon og plötuumslög Una Storia Importante, Rumours og Tango in the Night.
Plötur 3, 4 og 5. Já ég ákvað að telja ekki með þær sem ég hef fengið á nytjamörkuðum. Una Storia Importante með Eros Ramazotti og Rumours og Tango in the Night með Fleetwood Mac. Allar keyptar í Discoteca al Pantheon í Róm núna um helgina.
Ég fór alltaf á Jensens bøfhus en ég held að það sé búið að loka því núna. Pincho Nation var skemmtilega öðruvísi staður.
www.ruv.is/frettir/innl...
Síðast þegar ég vissi voru Siglufjörður og Seyðisfjörður í sama kjördæmi. Reyndar sama kjördæmi og þessi gæi er úr. Þekkir hann ekki sitt eigið kjördæmi?
It's project based. You have to fill out an application outlining your project and if it is accepted you can get a 3 to 12 month salary to work on the project.