Í dag á ég 20 ára starfsafmæli í leikskólanum mínum. Sem er ótrúlegt því að mér líður eins og ég sé ennþá 25 ára!*
*nema þegar ég stend upp of hratt. Eða beygi mig niður of hratt. Eða hleyp of hratt. Eða geri bara eitthvað hratt.
Í dag á ég 20 ára starfsafmæli í leikskólanum mínum. Sem er ótrúlegt því að mér líður eins og ég sé ennþá 25 ára!*
*nema þegar ég stend upp of hratt. Eða beygi mig niður of hratt. Eða hleyp of hratt. Eða geri bara eitthvað hratt.
Fór með dóttur á kvöldvakt Domus í gær.
Mínútur 1-5: Ég að segja hvað væri að, læknir að skoða augu, eyru og hlusta á lungu.
Rest af heimsókn: læknir að setja lyf í gáttina og að ræða við hana um bókina sem hún er að skrifa um naggrísaskóla.
Það er svo gott að hitta góða barnalækna.
Ógeðslega næs að Plie sé í Sporthúsinu og geta hreyft sig á meðan börnin eru á æfingu. Dóttir mín elskar að geta kíkt út um salinn þeirra á teygjusvæðið undir lok tíma og veifað mér.
Eina sem ég þarf að muna er að veifa ekki til baka í miðjum planka næst.
Bassinn í þessu lagi er svo yndislegur!
Hann er að fronta þetta en það er hæpið að Hilmar sé einn að henda milljónum í svona. Það er einhver/jir (inn)múraður með í þessu.
Veit einhver af hverju Byko ákváðu að skipta út gömlu, nothæfu síðunni sinni fyrir þetta spagettí sem þau eru með núna? Það eina sem mig vantar frá svona síðu er að geta skoðað vörur, sem er nokkurn veginn það eina sem ég get ekki gert á nýju síðunni.
Ahh, var ekki búinn að sjá þetta. Alveg sammála um tóninn í greininni. Þetta verður áhugavert en ég held nú að hann eigi ekki mikinn séns.
Ehh, er það? Hann hefur nú ekki verið mikið áberandi síðustu ár fyrir utan þessa heimsókn til Erdogan. Annars er slúðrið að hann sé dómsmálaráðherraefni Kristrúnar Frosta fyrir næstu þingkosningar.
Aero er oft til í Rekstrarvörum 😊
Það var myndataka í skólanum í vikunni og sex ára barnið valdi sér lúkk. Ef hún væri ekki getin í tilraunaglasi í Tékklandi færi ég fram á faðernispróf. Ég gæti reynt það sem eftir er án þess að vera jafn töff.
Takk. Er búinn að rækta og hlúa að mínum af bestu getu.
En kannski er jafnvel jarðvegur til að skoða aðra orðróma um ósnertanlegar fígúrur innan kirkjunnar? Sem komu að öðrum stofnunum sem áttu að Bjarg-a týndum sálum.
Já og btw, ef ég hafði heyrt af þessu þá er eiginlega engin séns að mér eldra og tengdara fólk hafi það ekki. Þessi uppgerðarforviða sem við sjáum núna er ekki sannfærandi.
Árið 2023 virðist fólk loksins vera tilbúið að ræða upphátt það sem var búið að hvísla um í áratugi. Því miður fyrir marga unga stráka þá var helgimyndin af sr Friðriki of sterk þar til núna. Vonandi koma ekki fleiri svona dæmi upp. Ég er samt ekki vongóður.
Já, einmitt. Þú ert nottla hluti af þessu woke pakki sem vilt normalísera að fólk bara skipti um hárlit eins og því sýnist! Ég hef ekkert á móti rauðhærðum en að kenna börnum jafnvel í leikskóla að það sé hægt að breyta um hárlit er bara sjúkt. Þetta er barnaníð og að leyfa þessu pakki að innræ
Beið með að losa mig við villimannalúkkið aðeins lengur en ég ætlaði til að leyfa skegginu að vera viðfangsefni í prófi í Tækniskólanum. Vel þess virði, skeggið fékk langþráð dekur og ég bara talsvert sætur á eftir.
Bæði. Farandtívolíið var oft við Smáralind en það voru líka tæki inni í Vetrargarðinum í einhver ár.
Já ok. Ég hef einmitt þvert á móti þá ímynd af honum að hann sé frekar hefðbundinn kristilegur íhaldsmaður, og þá vegna þess sem hann hefur skrifað í gegnum tíðina. Sem er einmitt merkilegt því að hann hefur verið nær þessum Deigluarmi sem Pawel og Þórlindur tilheyrðu.
Apple watch 8. Afmælisgjöf, er mjög kátur með það. Ennþá að finna hvað ég vil hafa á skjánum.
Já og er að svæfa, krefjandi myndataka.
Kom upp grunur á föstudegi um að dóttir mín væri ekki skorðuð. Áttum tíma á LSH til að skoða betur á mánudegi,3 vikur í settan. Vaknaði aðfaranótt laugardags við orðin "ég held að ég hafi verið að missa vatnið, þú þarft að hringja á sjúkrabíl". Væri til í að eiga enn grafið úr Fitbit búrinu.
Var eitt að koma inn rétt hjá mér. Reyndar í Kópavogi.
https://www.mbl.is/fasteignir/fasteign/1154463/
Ég notaði voice memos (reyndar langt síðan, kannski annað betra í dag) en mæli með að færa svo yfir í tölvu og nota eitthvað eins og Audacity til að geta hægt á afspilun og svoleiðis þegar þú hlustar/skrifar upp.
Hún er því miður* löngu horfin á vit glataðra harðra diska.
*sem betur fer.
Snoðaður og nánast óskeggjaður á Sus-þingi. Svona næstum eins og í dag.
Í dag fögnuðum við ástinni með foreldrum mínum sem endurnýjuðu hjúskaparheitin eftir 41 árs hjónaband. Pabbi hringdi í mig í dag og bað mig um að koma með regnbogafána, það væri ekki hægt að hafa svona gleði í dag án hans.
Til hamingju með daginn!
Í dag? 2007 eða 2008 var ganga sem var stefnt gegn Pride haldin seinna um haustið/veturinn. Baldur Freyr í CFC söfnuðinum, sem hafði setið inni fyrir morð fyrir utan Spotlight, leiddi gönguna og hélt ræðu. Fyrrverandi biskup ríkiskirkjunnar leiddi hópinn í bæn.
En svo voru það Færeyingar sem komu með þetta hingað.
Ertu til í að bíða aðeins með þetta á meðan ég leita að öðrum stað með skjól fyrir norðanátt að búa á.
Ég sá núna á aldurs/myndadótinu að ég er næstum hálfum áratug eldri þannig að það munar sennilega um það.