Þetta er auðvitað til háborinnar skammar!
Þetta er auðvitað til háborinnar skammar!
Þessi geðþekki spegilnafni minn var frumdanskur.
Ísland: Rauð viðvörun!
Vestfirðir: Sama, nema „við köllum þetta nú ekki veður…“
Hláka er orðið hálka að bráðna.
Er það ekki hið lítt nýtta slembilukka?
Flotbaka!
Almáttugur! Minnir reyndar að við höfum rætt þetta eitthvað eftir þáttinn, en ekki náð að laga. Bið ypsilonunnendur velvirðingar.
Mikið er ég glaður að allir innkaupapokarnir og plaströrin okkar fengu vinnu sem snyrtivörupokar í öryggisleitinni á flugstöðvum heimsins. Leitt að láta gott plast fara til spillis.
Vil vekja athygli á að Seltirningar og Helstirningar ríma.
Hvers vegna heldur leiðinlegt fólk alltaf að það sé normið?
Isspiss. Ég var að vona að málamiðlunin yrði hvalaeldi í Öskjuhlíð.
Þetta kallast nú aldeilis að „taka orminn“.
Mikilvæg uppgötvun dagsins: Skjáhvíla og táfýla ríma.
Svokölluð ellífðarvél.
Það eru tvö ell í elli. Samtals fjögur þá?
Til að lágmarka truflun og óhagræði fyrir samgöngumannvirki og ferðaþjónustu á CAPITAL REGION væri auðvitað heppilegast að geyma íbúa, trjágróður, íslenskar merkingar, sorp og annan óþarfa neðanjarðar.
Hans klaufi.
Þetta virkar svona eins og pókímon. Reyna að safna öllum af gamla forritinu.