Sem reynslubolti í bólum þá finnst mér virka smávegis að bera zink ríkt bossakrem (fyrir litlu börnin) á svona bólur sem manni verkjar í
Sem reynslubolti í bólum þá finnst mér virka smávegis að bera zink ríkt bossakrem (fyrir litlu börnin) á svona bólur sem manni verkjar í
Fitubrjótur hljómar eins og fjórtándi jólasveinninn
Algjört yndi
Vá hvað ég skemmti mér yfir Ne Zha myndunum. Grét og hló og þess á milli var ég agndofa yfir hversu vel teiknaðar þær eru og persónurnar áhugaverðar ef ekki djúpar í leiðinni.
Spái því að það sé ekki langt í að Auðbrekkan verði perla í Kópavogi eins og Nýbýlavegurinn er að verða. Nú þegar með eitt besta bakaríið, miðausturlenska búð og King Kong. Stutt í greatness segi ég :)
Þegar ég verzlaði börger á Mossley var ég mjög sáttur við franskarnar. Fékk mig til að leita til þeirra aftur
FISKURINN MUN ROTNA í SJÓNUM EF VIÐ FÁUM EKKI AÐ GERA ÞAÐ SEM OKKUR SÝNIST - tilfinningin sem ég fæ þegar sæólígarkar eru að tjá sig þessa dagana
Ég meina, talandi sverð gerði mig grátklökkan í nýjustu. Erfitt að toppa það
Veit það ekki fyrir víst en held þetta sé eitthvað evrópskt. Pantaði skó frá Króatíu og föt frá Póllandi og lenti í þessu. Frekar næs :)
Electrolux quiet-eitthvað hefur reynst mér vel síðustu 4 ár. Og hún er raunverulega hljóðminni sem er meiri kostur en ég bjóst við.
Francesca Albanese er ofarlega hjá mér þessa dagana þar sem hún veitir mér von um að rök séu enn góð og gild í heimi þar sem ótti og reiði virðist ráða ríkjum
Útvarp sem er líka ljós, hleðslubanki og hægt að hlaða með handsveif (já ég er að skoða temu dót :D)
Hjálparsíminn 1717 er annar möguleiki.
Ég er persónulega hrifin af samkennd fyrir compassion. Com þýðir með eða saman á latínu eftir því sem ég best veit og passion með þá merkingu að tengja við tilfinningar/líðan annara. Com=saman, passion=tilfinning/kennd.
Empathy vantar þó betri þýðingu.
Þú stýrir ekki hvernig aðrir hegða sér. En þú ræður hvernig þú bregst við hlutunum.
Gerir þetta ekkert minna pirrandi og ömurlega hegðun hjá viðkomandi samt.
Þurfa ekki image módelin svaka skjákort til að vera nothæf?
Hef aðallega spáð í kóða og smá sögusmíðum locally
Í dag er ég að sjá borgara í Palestínu snúa heim og von í loftinu. Það sama er að gerast í Líbanon. Smá ljós í myrkrinu.
BNA eru búin að halda mörgum okkar í tráma útaf stuðningi þeirra við martöðina fyrir botni miðjarðarhafs.
Það eina sem breytist núna er að hópurinn sem á að undiroka stækkar til muna og er nær okkur.
Bregst svipað við, reyni að hugsa stóískt og ekki loka augunum en tek þó pásur.
Deepseek ‘distill’ (litlu útgáfurnar sem er sæmilega raunhæft að keyra algjörlega sjálfur á eigin vélbúnaði) módelin eru annað hvort llama eða Qwen í grunninn.
Mæli með að prófa því það er gaman að geta keyrt þetta alveg sjálfur.
Það er ótrúlega nett að nota þetta. Skráði mig fyrir $2 hjá þeim, setti upp Cline í VS Code og nokkrum tímum seinna var ég búin að koma saman hobbí projecti sem ég var eiginlega búin að gefast upp á því ég nennti ekki að eyða tíma að læra á fullt af nýjum libraries. Kostaði mig ~$1
Fellow Aiden og þú slærð þá víst okkur nördana út sem eigum 5 mismunandi trektir, vigtum baunir upp á gramm, spáum í mölun uppá míkron og hvaða yrki það er 😅
Góð uppáhelling getur gert alveg magnað kaffi og því um að gera vel við sig (án þess að detta í gryfjuna sem við nördarnir erum í)
Þetta fer að verða það eina sem vantar að einhver noti fyrir smjör
Ég var svo spenntur þegar ég fékk frekar magnaða þvottagrind að ég var alveg glóandi af gleði lengi á eftir (og er enn) 😄
Innilegar samúðarkveðjur ❤️
Ég náði með herkjum að hætta um það leiti sem vape voru að koma og hef því aldrei prófað svoleiðis en er það og púðar ekki alveg jafn ávanabindandi?
Blender Guru á YouTube fannst mér góður til að komast í gang. Það er líka haugur af Unity efni þar
😫
Það ætti ekki að vera það nei.
Og þú ert ekkert ein um að líða svona. Hvað maður hefur brostið í grát að horfa upp á þetta.
Varðandi samkennd í eign garð mæli ég með að þú leyfir þér að líða eins og þér líður án þess að finnast það rangt. Gott að byrja þar. Er sjálfur að reyna það.
Það er engin leið að skilja þetta.
Hrottafengin morð á börnum og allir sem einhverju ráða yppa bara öxlum.
Við höfum þó Suður Afríku sem virðist vera orðin móralskur leiðtogi jarðarinnar þessa stundina.
Og pressa jólana er yfirdrifin og kjánaleg að svo mörgu leiti. Mörgum okkar líður bara andskoti illa á þessum tíma og því mikilvægt að sýna okkur sjálfum samkennd.