Mbl er orðið að áskriftarsíðu. Getur ekki lesið greinar nema innskráður. Síðasti naglinn í þá kistuna.
Mbl er orðið að áskriftarsíðu. Getur ekki lesið greinar nema innskráður. Síðasti naglinn í þá kistuna.
Það kemur stundum fyrir að yngra barnið er við það að sofna í bílnum sem kemur sér yfirleitt mjög illa fyrir nætursvefn allra á heimilinu. Það bregst ekki að eldra barnið spyr þá hvort það megi ‘ögra, bara smá’
Sama lagið á repeat virkar fyrir mig! Bara eitt lag, aftur og aftur. Næ þá að slökkva á restinni af heilanum og einbeita mér. Er fyrir vikið með allskonar fróðleik tengdan við lög og þarf bara að humma lagið til að rifja upp
Bikbok og kawasaki skór
Bjarni Ben og Sigurður Ingi að grípa frammí fyrir var þema kvöldsins.
Get ekki hætt að hugsa um hoppið hennar Simone Biles í samhengi við þetta:
Árið 2022 fæddust 4391 barn á Íslandi.
Frá 7. október til 7. nóvember 2023 hafa yfir 4000 börn á Gaza verið myrt á meðan heimsbyggðin horfir á og gerir ekkert.
Nágrannabarnið er nb mjög langt frá því að vera barn lengur
Ég á stóran draum um að nágrannabarnið flytji að heiman og haldi áfram að æfa sig annarsstaðar. Tel það ekki líklegt miðað við hvað nágrannabarnið eyðir miklum tíma heima hjá foreldrum sínum að spila dúmp dúmp dúmp dúmp. Nokkuð ólíklegt að nágrannabarnið sé með vinnu
Nágrannabarnið er með stóra drauma um að verða tónlistareitthvað. Nágrannabarnið æfir allan sólahringinn, sérstaklega ef foreldrar eru fjarri heimili að nóttu. Nágrannabarnið er algjörlega og gjörsamlega hæfileikalaust.
September er búinn að vera mjög langur og erfiður mánuður hérna. Í dag ákváðum við mæðgur að baka köku. Bakaraofninn er hættur að virka.
Tengi mjög fast við Green Day lagið í dag
Dóttir mín er mikið að pæla í framtíðinni þessa dagana en notar alltaf ‘þegar ég verð ung kona’ í staðin fyrir ‘þegar ég verð stór’ og það er það besta sem ég veit
Devanevar. Það virðist samt ekki vera margar minjar um merkið annað en þessi gamla auglýsing
Þetta nýja rúv app er óþolandi. Af hverju að taka auto play fítusinn af?!?
Svandís er gunga að standa ekki með banninu.
Já, en rafhlaðan var orðin mjög tæp svo það er kannski lán í óláni að hafa ástæðu til að skipta því út
Ég þarf eitthvað að finna nýja lausn. Langar í áreitislaust úr næst.
Keypti einhvern tíma hveiti í nettó sem reyndist svo vera svona 45% maðkar. Hef reynt að versla í nettó síðan en sé bara hvað það er allt skítugt.
Silent er án allra viðvarana hjá mér. Svo ef ég vill hafa titring þá kveiki ég á ‘hljóðinu’ á símanum (sem er þá titringur en engin hringing)
Hélt það væri normið, sérstaklega í tímum og fyrirlestrum til að sýna tillitssemi
En bara, það murraði allur salurinn stanslaust af símatitringsnotification
Er í tíma tvö af áttunda feril mínum í háskóla (illa farið með fjármuni og tíma, ég veit)
Það sem kemur mér mest á óvart í þessu öllu er hversu margir eru með kveikt á titring á silent á símunum sínum.
Til hamingju! 🥳💛
Eva Ruza fer á spjöld sögunnar sem heiðarlegasti áhrifavaldurinn
Mér finnst svo næs að þetta byrji svona snemma svo allt heilsufólkið sé búið þegar við hin skríðum út í dagsljósið um hádegi
Við hjónin vorum að syngja mjög næs bullútgáfu af jólalagi þegar fimm ára barnið sveiflar priki sem hún hélt á og sagði; akrabadabra hættið að syngja
Axlar Björn var frá bænum Öxl á Snæfellsnesi. Ef það telst með?
Niðurgreiðsla á rafmagnsbílum er mesta bull í heimi. Gerir mig brjálaða
Pælið í ef peningarnir sem fara í þennan helvítis flugvöll færu bara í að byggja upp heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni
Hef sèð krakka í weeping angels leik í garðinum við listasafn einars jónssonar og finnst svo galið að a) börnin þekki til weeping angels og b) þeim finnist þetta leikefni!
Ég er ein af þeim fyrstu til að deyja um leið og dósamatur og þurrvara klárast
Litla hamingjan sem átti sér stað fyrir framan sjálfssalann sem seldi egils orku í plastflösku með sykri í. Nýja Orkan er rosa flott en ég get ekki þetta gervisætubragð