„Æjj maður verður nú aðeins að leyfa sér, ha? Það er nú bara bolludagur einu sinni á ári.“ Segi ég og fæ mér bollu fjórða daginn í röð.
„Æjj maður verður nú aðeins að leyfa sér, ha? Það er nú bara bolludagur einu sinni á ári.“ Segi ég og fæ mér bollu fjórða daginn í röð.
Ég sturlast yfir þessu 😭😭😭
Stubbakviss
Barnið fékk svo skemmtilegt krakkaspurningaspil en það skemmir svo fyrir að myndirnar eru bara eitthvað AI slop 😭
Gleðilegan snjó! Í dag var ég sein því þriggja ára dóttir mín ákvað að hún vildi fara út á sandölum og fannst ég brjóta gróflega á mannréttindum hennar að banna henni það :D
Takk! Ég prófa það
Einu sinni var hægt að nota pinterest til að fá hugmyndir að skipulagi, skreytingum, uppskriftum og fleiru skemmtilegu. Nú er hægt að nota það til að sjá AI slop í öllum regnbogans litum.
Barnið mætt á munaðarleysingjahæli
Það sem barnið mitt heldur að sé að gerast þegar ég fer á klósettið
Heimskasta kona landsins ákvað að „skjótast” í Kringluna með eina þriggja ára og eitt ungabarn til að kaupa kuldastígvél, var dregin út í spennitreyju.
Þegar barnið drekkur bara annað brjóstið
Alla daga er ég í samningaviðræðum við 2 ára barn og alla daga tapa ég
Algjört scam að vera með stóra fallega glugga sem hleypa birtu inn. Á sumrin þarf að draga fyrir svo það sé ekki eins og gróðurhús og á haustin þarf að draga fyrir því fuglarnir eru allir blindfullir og eru að reyna að fljúga beint inn í eldhúsið manns 😤
@bjarkiarmanns.bsky.social
Ég er gengin 40 vikur og mér finnst mjög mikið að enginn ætti að mega nota klósettið heima hjá mér bara ef ske kynni að ég þyrfti að pissa á meðan það er upptekið 😤😤😤😤
Ég að sýna Bjarka myndirnar í kynsjúkdómafyrirlestrinum mínum
Er að horfa á fyrirlestur um kynsjúkdóma og borða túnfiskbát frá Subway. Algjört extreme sport
Ég er í mjög alvarlegu námi 😤
Barnið mitt ruglar saman Hörpu og Sorpu
Barnið sagði við pabba sinn að hann gæti ekki verið í kjól því hann væri strákur svo ég stakk upp á að við myndum horfa á allt RPDR frá byrjun með henni en það var skotið niður. En við ætlum alla vega að fara með henni að horfa á gönguna og fagna fjölbreytileikanum í dag ❤️❤️🌈
2 ára barnið mitt er sjúkt í Sumar á Sýrlandi, sem er vissulega geggjuð plata, en hún er farin að syngja hástöfum með: Nú þrumuskuð ég narra vil í limbó.
Líður smá eins og hér sé eitthvað að misfarast í uppeldinu
Þetta fór aftur inn í ísskáp, af því þetta var „ekki alveg tómt”
Féll fyrir AI vídjói af kanínum að hoppa á trampólíni. Alla vega ég er komin a biðlista eftir hjúkrunarheimili.
Okay??? I didn’t ask him to??
Ég fékk í magann 😭 kóngurinn er fallinn 😭
Það er bara einn konungur í Svíþjóð, og hann heitir Max 🫡
Ég er að fara til Svíþjóðar á eftir og ég er búin að vera að hugsa um þennan MAX hamborgara sem ég ætla að borða í kvöldmat í svona mánuð 👅👅👅