Finnst Jónasi Sen einhvern tímann gaman á tónleikum?
@bjolli.lister.is
Músíkant og matvælafræðingur með heilbrigðisfulltrúaréttindi. Gæðastjóri hjá Freyju og Ali. Gítarleikari hjá Lister. Frontmaður hjá TBK Group. Finnst gott að fá ananas. http://lister.is linktr.ee/triobjollaklikk
Finnst Jónasi Sen einhvern tímann gaman á tónleikum?
Þess vegna, krakkar mínir, gegnsteikjum við hamborgara. Medium rare hamborgari er ekki tilbúinn hamborgari.
Ég byrja á að spæna mig í gegnum nokkrar dýrategundir með því að fara með sömu vísuna. Vill svo til að orð dagsins í gær var þriðja orðið í þessari vísu.
Skjáskot af leyniorðaleiknum á morgunstund.net. Leyst í 3 tilraunum.
Þetta var fljótgert.
Blúskí Karamba!
Stærsti ókosturinn við lýðræðið er að einhvernvegin fær rassgatið á Snorra Mássyni að leggja jafn mikið til umræðunar og fólk sem veit eitthvað um evrópusambandið.
Skjáskot af RÚV. Mynd af Bjarna Ben og Þorsteini Víglundssyni yfir fyrirsögninni „Of mikið sé gert úr sterkri stöðu Íslands“
„Of mikið gert úr stöðu Íslands“, segir maðurinn sem ber einna mesta ábyrgð á núverandi stöðu Íslands. You can't make this shit up.
Málsháttur úr páskaeggi: „Betra er að spyrja tvisvar en villast einu sinni“
Það var eitt páskaegg brotið í þágu gæðaeftirlits á skrifstofunni í morgun. Þessi málsháttur var inni í því. Viðeigandi í dag.
Já. En samt nei, eftir því hver er að spyrja og hverjar væntingar viðkomandi eru.
Þau s.s. vilja Borgarlínu, hún má bara ekki heita Borgarlína?
Ekki borða gula snjóinn.
Plötuspilari. Master of Puppets með Metallica er undir nálinni.
Aðeins að deila fertugsaafmælisbarninu með nágrönnunum.
Skjáskot af foruminu á Metallica.com. Notandinn ValleyofPuppets deilir skjáskoti af Ticketmaster. Hann er nr. 419.684 í röðinni.
Það er fjör í miðasölunni fyrir Metallica í Las Vegas Sphere
Skjáskot af ruv.is. Fyrirsögn: „Eiginlega ekki hægt að gera verr“. Mynd af Brynjari Níelssyni.
Rétt. Það er eiginlega ekki hægt að gera verr en að kjósa Brynjar Níelsson.
Skjáskot af Vísi. Fyrirsögn: „Tvöfalt fleiri karlar en konur kjósa Miðflokkinn“
Nú verð ég með Súffragettulagið úr Mary Poppins á heilanum næstu mínúturnar...
Jakkafatakallar: Borgarlína er tómt rugl, kostar allt of mikið
Líka jakkafatakallar: www.visir.is/g/2026284841...
Tilboð (tímabundin lækkun á ákveðnum vöruliðum til að lokka viðskiptavini inn í búðirnar) eru í gangi allan ársins hring. Útsölur (varanleg, og oft meiri, lækkun á vörum sem eru orðnar „úreltar“ og eru látnar klárast áður en það koma nýjar á fullu verði í staðinn) eru yfirleitt bara tvisvar á ári.
..eða þú'st, það eru myndirnar sem ég missti af á sínum tíma og finnst eiginlega bara fyndið í dag að hafa ekki séð þær svo ég hugsa að ég sé ekkert að fara að gera það úr þessu. Af myndum sem eru mögulega á to do listanum en bara of djúpt til að komast að má t.d. nefna Jaws, Goodfellas og Inception
Allt sem heitir Avengers eitthvað.
Titanic.
Við látum nú ekki svona smáatriði eins og staðreyndir spilla gríninu.
Meme. Köttur með grátbólgin augu segir „thad kom aldri keks“
Skjáskot af lásskjá snjallsíma. Bakgrunnsmyndin er mynd af öðrum snjallsíma sem liggur á músarmottu með lotukerfinu. Á skjáborði hans er annar sími með mynd af öðrum snjallsíma sem liggur músarmottu með lotukerfinu. Á skjáborði hans er enn annar snjallsími sem liggur á músarmottu með lotukerftinu. Sá sími rýfur loks keðjuna með mynd af 9 ára barni.
Nýr sími, gamlar hefðir. Afritinu (9 ára þegar hún var tekin, á 2 mánuði eftir í 18 í dag) finnst þessi aðferð til að flytja skjámyndina af gamla símanum yfir á þann nýja ekki jafn fyndin og mér og vildi mikið frekar að ég notaði eitthvað generic sem fylgdi símanum eins og aðrir miðaldra lúðar.
Meme. Köttur með augun í eyrunum spyr „Ma jeg pliis fa keks“
Skjáskot úr skrefatalningarappi í snjallsíma. Fyrirsögn "Calories burned". Undirfyrirsögn "1.31 km - 2256 steps". Meginmál "You've burned 110 kcal! That's equivalent to about 3 biscuits."
Ég var að fá mér nýjan síma. Skrefateljarinn í honum reiknar skrefin yfir í kaloríur og kaloríurnar yfir í kexkökur. Hér eftir mun ég aldrei telja skref öðruvísi en í kexkökum.
Ég veit ekki, sumir myndu kalla það skill issue að þykjast vera að reka fyrirtæki og þurfa að vera að redda basic aðföngum með aukasendingum „sex sinnum á stuttum tíma“ (og þá eru bara talin þau skipti sem stöðuvörður var vitni að því)...
Andrew Moubtbatten-Windsor, fréttamyndin þegar honum var sleppt úr haldi lögreglu í vikunni.
Rage comic fígúran Oh Crap Face (a.k.a. Raisin Face, a.k.a. ASHRAF Face, a.k.a. OMG Face).
Tvífarar vikunnar.
Ég man samt ekki fyrir mitt litla líf hvaða mynd við sáum þennan tiltekna þriðjudag. Grunar að mögulega hafi fennt yfir minninguna þegar maður fór svo heim eftir tímann að horfa á mannkynssöguna gerast í beinni útsendingu á Fjölvarpinu...