Nei nú er okkur nóg boðið! Stela nýrri uppskrift frá okkur sem við áttum eftir að setja á matseðilinn! Jæja, ætli við breytum þá ekki í ís með kæstri skötu, sinnepssíld og kapers. Helvítis auðhringir! Yfirþjónninn er enn fullur og okkur fer að vanta nýjan.
01.04.2025 10:15
👍 5
🔁 2
💬 0
📌 0
Hefur einhver séð bjórkranann okkar? Hann hvarf í gær á óvæntu staffadjammi með Denverslun. Dúndi mætti með slípirokkinn og spilaði coverlög með Einsturtzende Neubaden.
11.02.2025 20:13
👍 3
🔁 1
💬 0
📌 0
TILBOÐ KVÖLDSINS:
2 fyrir 1 af örbylgjuréttunum frá í síðustu viku á meðan vindur er yfir 18m/s.
Kokkurinn og þjónninn eru komnir aftur.
05.02.2025 19:12
👍 2
🔁 1
💬 0
📌 0
TILKYNNING
Hefur einhver séð kokkinn og yfirþjóninn? Þeir skruppu í ríkið í gær. Bara örbylgjuréttir í boði í dag.
24.01.2025 13:49
👍 2
🔁 1
💬 0
📌 0
TILBOÐ KVÖLDSINS
flatur heimabruggaður bjór fylgir öllum réttum meðan birgðir endast, og þær eru miklar!
22.01.2025 19:08
👍 4
🔁 1
💬 0
📌 0
I will not be travelling to the USA unless I am forced to.
21.01.2025 23:17
👍 0
🔁 0
💬 0
📌 0
Mikið rosalega held ég að það verði gaman að skipuleggja ferðir eitthvað annað en til Bandaríkjanna næstu 4 árin eða svo. Meira að segja Rússland er vænlegri kostur... þó mér sé það þvert um geð.
21.01.2025 23:11
👍 2
🔁 0
💬 0
📌 0
TILKYNNING
Það var lokað í dag vegna þess að við vorum að búa til bakherbergi sem hægt er að bóka. Meira um það seinna. Opið á morgun.
20.01.2025 21:39
👍 1
🔁 1
💬 0
📌 0
TILBOÐ DAGSINS
Það er sama rolluborgaratilboð og í síðustu viku. Dúndi fær ekki að koma bema hann reddi nýju svifryki. Þjónusta gengur hægt af því það var óvart partý í gær eftir lokun. Enginn gambri til í dag. Velkomin til okkar.
19.01.2025 16:47
👍 2
🔁 1
💬 0
📌 0
Það er til hnefaleikaskák, hvernig væri að búa til handbolta scrabble?
18.01.2025 21:34
👍 2
🔁 0
💬 0
📌 0
TILKYNNING
Símanum okkar var lokað og þess vegna höfum við ekki getað sett tilboð á samfélagsmiðla. Nú er búið að borga símann (yfirþjónninn seldi dósir). Þess vegna fylgir stoutbjór með bernes essens öllum pöntunum. Flest velkomin, ekki hann Dúndi samt.
18.01.2025 21:30
👍 1
🔁 1
💬 0
📌 0
TILBOÐ KVÖLDSINS
Saxbauti úr dós með mysupiparsósu og hálfsoðnum kartöflum
2.050
16.01.2025 17:22
👍 2
🔁 1
💬 0
📌 0
TILKYNNING
Dúndi á bílaverkstæði Dúnda í næstu götu kláraði allt svifrykið okkar í rétti gærdagsins. Það var svo þurrt að hann kláraði heilan gambrabrúsa. Klósettið er lokað í dag.
15.01.2025 09:47
👍 5
🔁 1
💬 0
📌 0
RÉTTUR DAGSINS
Rolluborgari með blönduðu vegaryki, borið
fram með fírtommu galvaníseruðum nöglum og nuddolíu 5.618
(hægt er að sérpanta ryk fyrir aðeins 4.021 krónu til viðbótar. Í boði eru vegaryk
frá Skeiðarársandi, Mýrdalssandi, Kárahnjúkum, Dynjanda og Höfn
Svifryk aðeins 40.145)
14.01.2025 15:35
👍 2
🔁 1
💬 0
📌 0
TILBOÐ DAGSINS
Þorsksporðar í flötu pepsimaxi borið fram í fötu með karrísósu og boxy strokleðri.
3.182
Í KVÖLD
Karókíkeppni. Nýjustu lögin frá Temu, kokkurinn stjórnar. Tilboð á barnum, okkar eigin bruggaði lagerbjór og gambraskot
1.101
13.01.2025 14:54
👍 2
🔁 1
💬 0
📌 0
LOKAÐ Í DAG
Kokkurinn er skítþunnur. Þjónarnir eru ekki með lykla eftir að skipt var um lása eftir innbrotið. Það var engu stolið en aftur á móti skildu innbjótendur eftir tuskur, fötur og hreinsiefni. Við ætlum ekki að blanda þessu í matinn okkar, ófétin ykkar. Þetta er eitrað.
12.01.2025 14:33
👍 3
🔁 1
💬 0
📌 0
HELGARTILBOÐ
ÞRIGGJA RÉTTA
Forréttur:
Djúpsteiktar brauðsneiðar með grænum baunum og rúgmjöli stráð yfir
Aðalréttur:
Svínahnakki mauksoðinn í Egils Orku, borinn fram með rauðkáli, kartnöglum og saltpillum
Eftirréttur:
Poppkorns-hamsatólgarkaka, borin fram köld
13.961
Með gambrapörun: 18.902
11.01.2025 14:12
👍 3
🔁 1
💬 0
📌 0
Bandaríkjamenn eru æði!
10.01.2025 22:10
👍 3
🔁 0
💬 0
📌 0
Það er nánast stanslaus fréttaflutningur af gróðureldum í henni ammríku, nánast hvert sem litið er. Eitthvað annað en Gaza... ágætt að velta þessu fyrir sér þegar hugsað er um stóra samhengið.
10.01.2025 14:17
👍 3
🔁 0
💬 0
📌 0
MIÐDEGISTILBOÐ
Kaffilegið lambalæri með eldgömlum canderel gervisykri og líklega rjómadufti, borið fram með grænum baunum og lýsisdressingu.
Tilboðsverð 2.248
10.01.2025 13:56
👍 1
🔁 1
💬 0
📌 0
HÁDEGISTILBOÐ
Túnfiskur Í olíu úr dós í dósinni með kokteilberi 1.400
- með lokinu 1.600
09.01.2025 11:34
👍 4
🔁 1
💬 0
📌 0
Ykkur til upplýsingar þá vil ég benda á að eftir fimm ár verða 50 ár liðin frá því eitísið byrjaði...
08.01.2025 22:49
👍 4
🔁 0
💬 0
📌 0
Ævinlega húrra!
08.01.2025 22:12
👍 1
🔁 0
💬 0
📌 0
RÉTTUR DAGSINS
Roadkill dagsins, borið fram með skemmdu skyri og loðnum kartöflum
1.994 kr. á sérstöku tilboði.
08.01.2025 22:09
👍 4
🔁 2
💬 0
📌 0
Góðan dag, gott kvöld, góða nótt
08.01.2025 21:36
👍 6
🔁 0
💬 1
📌 0
Mættur aftur
19.11.2024 09:39
👍 0
🔁 0
💬 0
📌 0
Afsakið
26.09.2023 12:46
👍 1
🔁 0
💬 0
📌 0
Bara scary!
16.08.2023 23:54
👍 0
🔁 0
💬 0
📌 0
Í ljósi atburða undanfarinna daga í málefnum hælisleitenda, hvað ætli Ísland hafi hrapað mikið niður á listanum yfir þjóðir sem sinna mannúð sem skyldi? Og hversu hratt ætlum við séum að klifra upp skíthælalistann?
16.08.2023 23:39
👍 4
🔁 0
💬 0
📌 0